Voodo Child

Sunnudaginn 16.ágúst kl 18

Rokkaðu með ´60 - ´70s blues-funk bandinu Voodo Child

Á Slippbarnum 16.ágúst kl.18


Lifandi tónlist, góð stemning og klassískir drykkir á barnum.

Hvort sem þú vilt setjast niður og njóta kvöldsins yfir góðum mat og drykkjum eða bara kíkja við í einn drykk og hlusta á tónlistina, þá er þér velkomið að koma við á Slippbarnum.

 Pantaðu borð fyrir kvöldið eða komdu bara við og njóttu stemningarinnar.

Gull og Gull Lite - 990kr
Kokteill mánaðarins - 1.900kr

Hljómsveitin

Voodoo Child er ítalsk-amerískt blues-rock band sem var stofnað á Ítalíu árið 2018. Hljómsveitin samanstendur af gítarleikaranum Matteo Amadei, bandarísku söngkonunni og píanóleikaranum Tamar Iberri, trommuleikaranum Degian og bassaleikaranum Jeff Bruce.

Tónlistin sækir sterkt í blues, funk og rokk sjöunda og áttunda áratugarins, með áhrifum frá goðsögnum á borð við Jimi Hendrix, Santana, The Doors, John Mayall, The Rolling Stones og fleiri. Með blöndu af spuna, kraftmiklum flutningi og vintage-hljómi skapa þau stemningu sem minnir á hippa- og Woodstock-tímabilið, en með sínum eigin persónulega stíl.

Voodoo Child hefur komið fram víða um Evrópu, meðal annars á Ítalíu, í Þýskalandi, Hollandi, Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Á gamlárskvöld 2024 steig hljómsveitin meðal annars á svið á Hard Rock Café í Amsterdam.


Við hlökkum til að sjá ykkur!


Voodoo Child blues-rock hljómsveitin spilar lifandi á Slippbarnum í Reykjavík